Kæru félagar í Sjálfstæðisfélaginu í Kópavogi.
Stjórn kynnir mjög áhugaverðan og spennandi fund næstkomandi laugardag, þann 22. nóvember, kl. 10.00 í Hlíðarsmára 19.
Framsögumaður á þessum fundi er dr. Kári Stefánsson
Erindi hans ber yfirskriftina – “Staða heilbrigðiskerfis á Íslandi í dag”
Stjórn hvetur alla sjálfstæðismenn til að mæta á þennan fund. Gott kaffi og veitingar á staðnum.
Stjórn þakkar góðar viðtökur félagsmanna vegna útsendingar félagsgjalda, félagsgjöldin eru forsenda þeirrar starfsemi sem félagið rekur, og hvetur félagsmenn almennt til að greiða.
Kveðja,
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi