Menningarárið 2026 hófst með krafti hjá okkur í Kópavogi þegar hinn einstaki viðburður Ljóðstafur Jóns úr Vör markaði upphaf ársins. Þar gafst almenningi og grunnskólabörnum kostur á að senda inn ljóð og láta sköpunarkraftinn njóta sín. Áhuginn lét ekki á sér standa enda barst metfjöldi ljóða í keppnina, alls 305 talsins, og fögnum við þeim mikla áhuga sem samkeppnin nýtur. Það var því vandasamt verk fyrir dómnefndina að velja vinningsljóðin, en sigurvegararnir voru krýndir í Salnum 21. janúar sl., að viðstöddum fullum sal ljóðaunnenda.
Skýr stefna skilar árangri
Menningin er það sem gerir fólk að manneskjum. Hún tengir saman fortíð, nútíð og framtíð, veitir innblástur, mótar samfélag og skapar rými fyrir nýja hugsun og sköpun. Að leggja rækt við menningu skilar árangri.
Undanfarin ár hefur verið mikill uppgangur í menningarstarfsemi bæjarins og fjölbreytt dagskrá í boði fyrir íbúa á öllum aldri. Á síðasta ári voru til að mynda skipulagðir yfir 700 viðburðir og gestakomur hátt í 300 þúsund. Heimsóknartölur í menningarhús Kópavogs hafa aldrei verið hærri. Þar með erum við að uppskera árangur af þeim breytingum sem gerðar voru á skipulagi og áherslum í starfsemi menningarhúsanna fyrir rúmum tveimur árum. Breytingarnar vöktu mikla umræðu – bæði jákvæða og neikvæða – en ljóst er að þær hafa skilað sér með afgerandi hætti. Fjölgun gesta staðfestir að sú stefnumörkun sem tekin var, þ.e. að efla viðburðahald sérstaklega fyrir íbúa bæjarins, hefur skilað sér margfalt.
Áfram og upp
Árlega styrkjum við í Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogs fjölda verkefna sem miða að því að efla skapandi starf og menningarlíf í bænum. Á þessu ári styrkjum við 14 verkefni af öllum stærðum og gerðum – fjölbreytt og metnaðarfull.
Þar að auki styðjum við ýmis innri verkefni sem fram fara í menningarhúsunum okkar, svo sem Barnamenningarhátíð, Vetrarhátíð, Ljóðstaf Jóns úr Vör, 17. júní hátíðarhöld, Menningu á miðvikudögum, fjölskyldustundir á laugardögum, foreldramorgna og skipulagðar skólaheimsóknir leik- og grunnskólabarna, svo fátt eitt sé nefnt. Nefndin velur einnig bæjarlistamann Kópavogs, sem hlýtur 1,5 milljónir króna í verðlaunafé, auk þess sem veitt er fjármagn til myndlistarverðlauna Gerðar Helgadóttur og listaverkakaupa Gerðarsafns. Þá hefur á undanförnum árum verið byggður upp sjóður vegna kaupa á nýjum útilistaverkum í bænum og er ákvörðun um val þess verkefnis væntanleg á þessu ári. Bæjarbúar mega því búast við nýjum listaverkum í nærumhverfi sínu á næstu mánuðum.

Árið 2023 innleiddum við nýjung sem felst í stuðningi við tónleikahald og menningarviðburði fyrir eldri borgara í Kópavogi sem fram fara í félagsmiðstöðvum þeirra. Þessi nýbreytni hefur fallið vel í kramið og fengið góðar viðtökur og ætlum við að halda áfram þessum stuðningi á þessu ári. Þá má ekki gleyma stuðningi nefndarinnar við nýsköpun í tónsmíðum í samstarfi við Salinn, auk rótgróinna tónleikaraða á borð við Tíbrá, Sumardjass og Söngvaskáld.
Það er óhætt að segja að árið 2026 verði kröftugt menningarár sem ég vona svo sannarlega að Kópavogsbúar taki þátt í og njóti. Fleiri spennandi verkefni eru í farvatninu sem við segjum frá síðar, en fylgjast má með dagskránni á meko.is
Já, það er gott að búa í Kópavogi – og ég get lofað því að það verður enn betra með áframhaldandi öflugri menningu og blómlegu mannlífi.
Elísabet Sveinsdóttir
formaður menningar- og mannlífsnefndar Kópavogs

