Aðalfundarboð

481

Kæru félagar í Sjálfstæðisfélaginu í Kópavogi.

Stjórn félagsins boðar til aðalfundar þess.

Aðalfundur Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi verður haldinn fimmtudaginn 7. apríl, kl. 20.00 í Hlíðasmára 19.

Dagskrá aðalfundar er:

a. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári
b. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
c. Ákvörðun árgjalds
d. Lagabreytingar
e. Kosning formanns, stjórnar og endurskoðenda skv. 7. gr.
f. Kosning fulltrúa í fulltrúa- og kjördæmaráð Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi
g. Önnur mál

Lög Sjálfstæðisfélagins í Kópavogi í heild sinni má finna á www.xdkop.is

Kveðja,
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi