Dagskrá aðalfundar:
- Skýrsla stjórnar
- Reikningar félagsins lagðir fram
- Ákvörðun árgjalds
- Lagabreytingar
- Kosning formanns
- Kosning stjórnar
- Kosning skoðunarmanna
- Kosning fulltrúa í fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi
- Kosning fulltrúa í kjördæmisráð Reykjaneskjördæmi (sjá tillögu að lagabreytingu)
- Önnur mál
Stjórn félagsins leggur til eftirfarandi lagabreytingar :
Breyting á g. lið 9. gr. þar sem nú stendur :
,,Kosning fulltrúa í kjördæmisráð Reykjaneskjördæmis“
verði:
„Kosning fulltrúa í kjördæmisráð Suðvesturkjördæmis“
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Kópavogs verður haldinn fimmtudaginn 2. febrúar kl. 20 að Hlíðasmára 19
Við hvetjum áhugasamt félagsfólk til að gefa kost á sér í stjórn félagsins.
Framboðsfrestur er til miðnættis mánudaginn 30. janúar 2023 og skulu þau send á xdkop@xdkop.is fyrir þann tíma.