Aðalfundur Sjálfstæðifélags Kópavogs verður haldinn fimmtudaginn 29. febrúar
kl. 20 að Hlíðasmára 19.

Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar
2. Samþykkt reikninga
3. Ákvörðun árgjalds
4. Lagabreytingar
5. Kosning formanns
6. Kosning stjórnar
7. Kosning varastjórnar
8. Kosning skoðunarmanna
9. Kosning fulltrúa í fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi
10. Kosning fulltrúa í kjördæmisráð Suðvesturkjördæmis
11. Önnur mál.

Stjórn félagsins leggur til eftirfarandi lagabreytingu:

Breyting á 8. gr. sem hljóðar svo:
„Stjórn félagsins skipa sjö félagar. Formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari
og þrír meðstjórnendur. Stjórnin skal kosin þannig: Fyrst skal kjósa formann,
síðan skulu hinir sex stjórnarmenn kosnir samtímis. Því næst skulu kosnir
þrír varastjórnendur á sama hátt. Loks skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga.
Stjórnin skiptir með sér verkum. Kjörtímabil stjórnar er á milli aðalfunda.“

8. gr. verði:
„Stjórn félagsins skipa fimmtán félagar. Formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari
og ellefu meðstjórnendur. Stjórnin skal kosin þannig: Fyrst skal kjósa formann,
síðan skulu hinir fjórtán stjórnarmenn kosnir samtímis. Loks skal kjósa
tvo skoðunarmenn reikninga. Stjórnin skiptir með sér verkum.
Kjörtímabil stjórnar er á milli aðalfunda.“

Við hvetjum áhugasamt félagsfólk til að gefa kost á sér í stjórn félagsins.

Framboðsfrestur er til miðnættis mánudaginn 26. febrúar 2024
og skulu þau send á xdkop@xdkop.is fyrir þann tíma.
Tilgreina skal hvort félagar bjóði sig fram í formann, stjórn eða varastjórn.       

Stjórn Sjálfstæðisfélags Kópavogs