Áfram konur í Kópavogi!

479

Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi skipar konum í fremstu röð á framboðslista sínum. Þær Margrét Friðriks, Karen, Hjördís og Margrét Björns munu reynast verðugir fulltrúar í bæjarstjórn Kópavogs á næsta kjörtímabili. Þær vilja hitta konur í Kópavogi á tveimur fundum og ræða málefni og framtíð okkar fallega bæjarfélags.

Fundirnir eru:
14. maí – hádegisverðarfundur klukkan 12 að Hlíðarsmára 19
23. maí – konukvöld klukkan 17 í félagsheimili Ýmis siglingaklúbbs Kópavogs

SKEMMTIFUNDUR
SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉLAGIÐEDDA FAGNAR 60 ÁRA AFMÆLI MEÐ SKEMMTIFUNDI

Konur í Kópavogi eru boðnar á skemmtifund föstudaginn 23. maí næstkomandi Í Naustavör 20, félagsheimili siglingarklúbbsins Ýmis í Kópavogi, frá klukkan 17:00 – 19:00.

Fyrirkomulagið verður með sniði Káta kampavínsklúbbsins.  Þú býður með þér góðri vinkonu og saman komið þið með eina freyði- eða léttvínsflösku.

Hallór Jón syngur nokkur lög.  Þá verður hið margrómaða happdrætti og sölukynning á snyrtivörum.

Gestir kvöldsins:

Margrét Friðriksdóttir, skólameistari MK
Karen Halldórsdóttir, MA mannuðsstjórnun
Hjördís Johnson, kynningarstjóri
Margrét Björnsdóttir, forseti bæjarstjórnar

Fundarstjóri:

Sigríður Kristjánsdóttir, formaður Eddu félags sjálfstæðiskvenna í Kópavogi

Áfram konur í Kópavogi