Ástvinina heim

462

Ein mesta ógnin við mögulegan vöxt íslensks efnahags og versta afleiðing efnahagshrunsins er landflóttinn, mannauðstapið. Frá árinu 2009 hefur um 2,7% þjóðarinnar flutt af landi brott sem er gífurlega hátt hlutfall af ekki stærri eyþjóð. Alltof margir hafa ákveðið að hag sínum sé betur borgið annarsstaðar. Sumir fóru vegna þess að þeir sáu ekki fram úr skuldum, misstu vinnuna, lækkuðu í tekjum, vegna versnandi vinnuumhverfis og síðast en ekki síst höfðu ekki trú á aðgerðum stjórnvalda til þess að byggja hér upp trúverðuga framtíð. Við vitum af hryllilegum staðreyndum þess efnis að hér séu heilu stéttirnar að hverfa úr landi, nefni hér sérfræðilækna sérstaklega. Ríkisstjórnin hefur útskýrt þetta sem minnkandi atvinnuleysi á Íslandi. Ég útskýri þetta sem sjúkt atvinnulíf og blóðtöku sem ekki verður unað við öllu lengur.

Ég tel að þessir brottfluttu Íslendingar eigi það meira og minna sameiginlegt að bíða eftir því að aðstæður breytist ,,heima“ svo þeir geti snúið aftur. Hér vill fólk eiga heima og bera sín bein. Hér bíðum við eftir því að fá ástvinina okkar heim. Til þess þurfa aðstæður að breytast. Hér þarf fjárfesting að fara af stað svo að atvinnutækifærum fjölgi og síðast en ekki síst atvinnuöryggi aukist. Eins og staðan er í dag eru mörg fyrirtæki orðinn þreytt á óhóflegri skattastefnu ríkisins og því skekkta samkeppnisumhverfi sem hér ríkir vegna afskrifta tiltekinna fyrirtækja. Það er ekki sjálfgefið að einstaklingar séu í atvinnurekstri því ábyrgðin sem því fylgir er ekki fyrir hvern sem er og oft vanmetin.

Sjálfstæðiflokkurinn hefur komið með raunhæfar lausnir fyrir einstaklinga og heimili. Við ætlum líkt og aðrir flokkar, ekki gefa tommu eftir í samningaviðræðum við vogunarsjóðina. Ef þetta svigrúm myndast sem fólk er vonast eftir munum við að sjálfsögðu nýta það til góðra verka heimilunum og samfélaginu öllu til góða. Ekki skortir hugmyndirnar um nauðsynleg verkefni sem þarf að ráðast í. Við gefum okkur niðurstöðuna samt sem áður ekki fyrirfram þar sem að það er einfaldlega óábyrgt. Í Sjálfstæðisflokknum er einvalalið einstaklinga sem hæfastir eru til þess að leiða slíkar samningaviðræður þjóðinni til heilla.

Merkjum X við D.