Dr. Þorgeir Pálsson, prófessor emerítus við Háskólann í Reykjavík og fyrrum flugmálastjóri Íslands, verður með erindi næstkomandi laugardag þann 31. október kl 10:00, þar sem hann mun fjalla um Reykjavíkurflugvöll.
Farið verður stuttlega yfir sögu flugvallarins, hlutverk hans og stöðu í dag og þá kosti sem eru varðandi framtíð þessa mikilvæga samgöngumannvirkis.
Við hvejum ykkur til að senda inn spurningar fyirr fundinn á xdkop@xdkop.is, eða meðan á fundinum stendur.
Fundinum verður streymt á Facebook síðu Sjálfstæðisfélagsins: HÉR
Kær kveðja,
Stjórn Sjálfstæðisfélags Kópavogs