Framboð til sveitarstjórnarkosninga í Kópavogi vorið 2018

484

Uppstillingarnefnd fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi auglýsir eftir framboðum á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí 2018.

Þeir flokksmenn sem hafa hug á því að taka sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningar 2018 skulu senda uppstillingarnefnd skriflega kynningu þar sem þeir kynna sig og sinn bakgrunn auk þess að tilgreina hvaða sæti á lista sóst er eftir.

Frambjóðendur skulu eiga kosningarétt í kosningum til sveitarstjórnar vorið 2018, vera íslenskir ríkisborgarar og fullra 18 ára þegar kosningar fara fram, eiga lögheimili í sveitarfélaginu og vera meðlimir í Sjálfstæðisfélagi í Kópavogi.

Framboðum skal skilað í síðasta lagi 27. desember n.k.

Framboðum skal skilað á netfangið: kopavogur@xd.is