Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi

“Framboðslistinn sýnir bæði breidd og styrk Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Kópavogur er framúrskarandi sveitarfélag og við ætlum að sjá til að svo verði áfram með því að leggja áherslu á skilvirkan rekstur, lágar álögur, framúrskarandi þjónustu, framsækna skóla og greiðar samgöngur fyrir bæjarbúa. Við göngum spennt til fundar við kjósendur næstu daga og vikur þar sem við kynnum áherslur okkar.” Segir Ásdís Kristjánsdóttir, oddviti listans.

Fullskipaður listi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi

1. Ásdís Kristjánsdóttir, hagfræðingur
2. Hjördís Ýr Johnson, bæjarfulltrúi og framleiðslustjóri
3. Andri Steinn Hilmarsson, varabæjarfulltrúi og aðstoðarmaður þingflokks
4. Hannes Steindórsson, fasteignasali
5. Elísabet Sveinsdóttir, markaðsstjóri
6. Hanna Carla Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri
7. Sigvaldi Egill Lárusson, fjármála- og rekstrarstjóri
8. Bergur Þorri Benjamínsson, starfsmaður þingflokks 
9. Sigrún Bjarnadóttir, skólastjóri
10. Hermann Ármannsson, stuðningsfulltrúi
11. Axel Þór Eysteinsson, framkvæmdastjóri
12. Tinna Rán Sverrisdóttir, lögfræðingur
13. Rúnar Ívarsson, markaðsfulltrúi
14. Sólveig Pétursdóttir, fyrrv. dómsmálaráðherra og forseti Alþingis
15. Kristín Amy Dyer, forstjóri
16. Sveinbjörn Sveinbjörnsson, lögmaður
17. Sunna Guðmundsdóttir, forstöðumaður
18. Jón Finnbogason, útlánastjóri
19. Unnur B Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands
20. Gunnsteinn Sigurðsson, fyrrv. Skólastjóri
21. Margrét Friðriksdóttir, forseti bæjarstjórnar
22. Ármann kr Ólafsson, bæjarstjóri