Fundur með frambjóðendum í Suðvesturkjördæmi

614

Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fá tækifæri til að kynna sig á opnum framboðsfundi, fimmtudaginn 3. júní.

Fundurinn fer fram í Urðarbrunni, hátíðarsal Fjöbrautaskólans í Garðabæ, kl. 17:30.

Fundinum verður einnig streymt á Facebook síðu Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi og á síðum Sjálfstæðisfélaga í kjördæminu.