fbpx

Hjördís Ýr Johnson

Framleiðslustjóri

Býður sig fram í 2. sæti

Hjördís Ýr Johnson gefur kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi 12. mars.   

Hjördís hefur setið í bæjarstjórn Kópavogs frá árinu 2014 og jafnframt í framkvæmdastjórn bæjarins allan þann tíma. Hennar áhersla er á ábyrgan og traustan rekstur um leið og haldið er uppi öflugu þjónustustigi bæjarins.   

Sem formaður umhverfis- og samgöngunefndar setti Hjördís í forgang að bæta umferðaröryggi barna,  stækka göngu- og hjólastígakerfi bæjarins, koma á hreinsunarátaki á atvinnusvæðum og samræma lausnir í flokkun á sorpi. 

Síðustu fjögur ár hefur Hjördís, sem varaformaður skipulagsráðs, komið að byggingu nýrra hverfa í Glaðheimum, Smáranum, miðbænum og á Kársnesinu sem er eitt athyglisverðasta uppbyggingarsvæði á höfuðborgarsvæðinu þar sem afþreying, ný fyrirtæki og veitingahús hafa aukið gæði íbúa. 

Í ljósi traustrar fjárhagsstöðu bæjarins vill Hjördís hraða uppbyggingu skóla- og vegamannvirkja.  Markmiðið er að flýta byggingu leikskóla og bjóða yngri börnum leikskólavist ásamt því að stækka grunnskólana í þéttingarhverfum bæjarins.  Sem fyrr leggur hún áherslu á fegrun bæjarins, vistlegar götur og falleg græn svæði. 

Hjördís hefur fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu. Hún er framleiðslustjóri StudioM, framleiðsludeildar Árvakurs. Áður hafði hún séð um markaðsmál Árvakurs, verið útsendingarstjóri frétta á Stöð 2 og dagskrárframleiðandi hjá Stöð 2 og Skjá einum. Auk þess hefur hún starfað og tekið þátt í uppbyggingu Nordic Photos. 

Sem fyrrum Dale Carnegie þjálfari leggur Hjördís mikið upp úr góðum mannlegum samskiptum og leiðtogafærni og hefur hún hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir að vera í hópi þriggja bestu Dale Carnegie þjálfara í Evrópu.

Hjördís er með BA-gráðu í fjölmiðlun og sjónvarpsþáttagerð frá Emerson College í Boston og stundaði meistaranám í uppeldis- og menntunarfræðum við Háskóla Íslands.  Hún er í sambúð með Árna Friðleifssyni, aðalvarðstjóra hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, og saman eiga þau fimm börn á aldrinum 19-25 ára. 


Heimasíða: https://www.hjordisyr.is/
Netfang: hjordisjohnson@gmail.com

Kynningarmyndband