Auglýst er eftir framboðum til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Framboðum ber að skila með rafrænum hætti til kjörnefndar. Frambjóðandi þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkum á eftirfarandi tengil: SKRÁNING, fyrir klukkan 16:00 föstudaginn 4. febrúar 2022. Innheimt er 15.000 kr. óafturkræft þátttökugjald við skráningu.
- Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu sveitarstjórnarkosningum.
- Hver frambjóðandi skal skila inn skriflegum meðmælum með framboði sínu frá 20 flokksbundnum sjálfstæðismönnum búsettum í Kópavogi, hið minnsta. Tekið skal fram að enginn meðmælandi má mæla með fleirum en 10 frambjóðendum.
- Frambjóðandi skal vera flokksbundinn sjálfstæðismaður og búsettur í Kópavogi
Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar frambjóðendum, eftir að framboðsfresti lýkur.
Prófkjörið fer fram laugardaginn 12. mars 2022.
Einnig er hægt að sjá upplýsingar á vef Sjálfstæðisflokksins, HÉR
Kjörnefnd