Lárus Axel Sigurjónsson

460

óskar eftir 4. sæti á lista Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi.
Lárus Axel opnar kosningaskrifstofu sína að Smiðjuvegi 9, þann 1. febrúar kl. 14.

Uppalinn í Kópavogi og fæddur 17. nóvember 1976. Kópavogsbúi í húð og hár.

Miklar breytingar og hraður uppvöxtur hafa verið í bænum undanfarin ár og finnst mér skilda mín sem heimamaður að taka þátt í að gera góðan bæ, betri.

Eftir að börnin mín byrjuðu í leik- og grunnskóla, fannst mér mjög mikilvægt að vera virkur í foreldrastarfinu. Að fá að vera þátttakandi í að byggja upp gott skólasamfélag sem skilar sér í gott umhverfi, ekki bara fyrir fjölskylduna, heldur líka fyrir starfsfólkið. Á þessum tíma var ég í stöðu formanns og gjaldkera í leikskólanum og grunnskólanum.

Til þess að miðla minni reynslu sem foreldri, áhugamaður um bætt umhverfi og Kópavogsbúi, fannst mér nauðsynlegt að taka næsta skref og skráði mig í Sjálfstæðisfélagið fyrir fjórum árum, eftir að hafa verið á hliðarlínunni í mörg àr.
Mitt markmið er að efla samskipti, kanna boðleiðir innan félagsins og auðvitað taka þátt í að efla bæinn, gera hann betri og að vera til staðar fyrir bæjarbúa. Ég var kosinn í stjórn Sjálfstæðisfélagsins fyrir þremur árum síðan, hafa þau verið góð og lærdómsrík.

Ég byrjaði mína skólagöngu í Snælandsskóla og skellt mér strax í Menntaskólann í Kópavogi eftir skólaskylduna. Eftir þrjú ár í MK fór ég í Iðnskólann í Reykjavík og kláraði rafvirkjun og vann við það í nokkur ár. Eftir nokkur góð ár sem rafvirki ákvað ég að skipta um vinnu og hóf störf hjá Johan Rönning sem sölumaður rafbúnaðar. Með þeirri vinnu sótti ég fjarnám frá Háskólanum á Bifröst og kláraði diplómanám í verslunarstjórnun.

Ég hef komið víða við á vinnumarkaðnum. Ég starfaði lengi vel hjá fjölskyldufyrirtæki sem hét Nesti hf. Eftir að fjölskyldan seldi fyrirtækið þá var mín sumarvinna rútuakstur samhliða námi og aukastarf hjá ÍTK (íþrótta- og tómstundaráði Kópavogs) í unglingastarfi. Nú starfa ég sem Eftirlitsfulltrúi þjónustu- og gæðamála hjá Strætó bs.

Kæru félagar, ég óska eftir 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi þann 8. febrúar nk.

Lárus Axel