Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra,
verður gestur sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði
laugardaginn 17. febrúar kl. 10:30.

Konráð mun fjalla um efnahagsmál og stöðuna í kjaramálum.

Fundurinn verður haldinn hjá Sjálfstæðisfélagi Kópavogs að Hlíðasmára 19, Kópavogi.

Kaffi og meðlæti.

Við hlökkum til að sjá ykkur.
Stjórnir sjálfstæðisfélaga Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar.