Laugardagsfundur: Af vettvangi bæjarmála

358

Kæru félagar í Sjálfstæðisfélaginu í Kópavogi.

Stjórn kynnir mjög áhugaverðan fund næstkomandi laugardag, þann 14. nóvember, kl. 10.00 í Hlíðarsmára 19. 

Framsögumaður á þessum fundi er Margrét Friðriksdóttir, forseti bæjarstjórnar og rektor Menntaskólans í Kópavogi.

Erindi hennar mun bera yfirskriftina: „Af vettvangi bæjarmála“.

Stjórn hvetur alla til að mæta á þennan fund. Gott kaffi og veitingar á staðnum.

Stjórn þakkar góðar viðtökur félagsmanna vegna útsendingar félagsgjalda, hvetur alla sem hafa tök á að greiða sitt gjald, félagsgjöldin eru forsenda þeirrar starfsemi sem félagið rekur.

Kveðja,
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi