Laugardagsfundur: Álit EFTA dómstólsins um verðtryggð lán heimila

367

Kæru félagar í Sjálfstæðisfélaginu í Kópavogi.

Stjórn kynnir mjög áhugaverðan og mögulega stefnumarkandi fund næstkomandi laugardag, þann 4. október, kl. 10.00 í Hlíðarsmára 19.

Framsögumaður á fundinum er Hjörtur Torfason, fyrrum dómari við hæstarétt Íslands.

Erindi hans mun fjalla um forúrskurð/álit EFTA dómstólsins frá 28. ágúst s.l. um verðtryggð lán heimila.

Stjórn hvetur alla sjálfstæðismenn til að mæta á þennan fund. Gott kaffi og veitingar á staðnum.

Stjórn þakkar góðar viðtökur félagsmanna vegna útsendingar félagsgjalda, félagsgjöldin eru forsenda þeirrar starfsemi sem félagið rekur, og hvetur félagsmenn almennt til að greiða.

Kveðja,
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi