Laugardagsfundur: Bretland og Evrópusambandið

357

Kæru félagar í Sjálfstæðisfélaginu í Kópavogi.

Stjórn kynnir mjög áhugaverðan fund næstkomandi laugardag, þann 31. september, kl. 10.00 í Hlíðarsmára 19. 

Framsögumaður á þessum fundi er Hjörtur J. Guðmundsson, sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur.

Erindi hans mun bera yfirskriftina: „Bretland og Evrópusambandið – að vera eða ekki vera“.

Stjórn hvetur alla til að mæta á þennan fund. Gott kaffi og veitingar á staðnum. Þökkum samveruna á nýliðnum landsfundi !

Stjórn þakkar góðar viðtökur félagsmanna vegna útsendingar félagsgjalda, hvetur alla sem hafa tök á að greiða sitt gjald, félagsgjöldin eru forsenda þeirrar starfsemi sem félagið rekur.

Kveðja,
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi

“.