Laugardagsfundur: Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar 2015

350

Kæru félagar í Sjálfstæðisfélaginu í Kópavogi.

Stjórn kynnir mjög áhugaverðan fund næstkomandi laugardag, þann 6. desember, kl. 10.00 í Hlíðarsmára 19.

Framsögumaður á þessum fundi er Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri.

Erindi hans ber yfirskriftina – Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar 2015

Stjórn hvetur alla sjálfstæðismenn til að mæta á þennan fund. Gott kaffi og veitingar á staðnum.

Stjórn þakkar góðar viðtökur félagsmanna vegna útsendingar félagsgjalda, félagsgjöldin eru forsenda þeirrar starfsemi sem félagið rekur, og hvetur félagsmenn almennt til að greiða.

Kveðja,
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi