Laugardagsfundur, flóttinn frá Sýrlandi

376

RN_03_BirgirArmansson

Kæru félagar í Sjálfstæðisfélaginu í Kópavogi.

Stjórn kynnir mjög áhugaverðan fund næstkomandi laugardag,
þann 26. september, kl. 10.00 í Hlíðarsmára 19.

Framsögumenn á þessum fundi eru eftirtaldir aðilar:

 Birgir Ármannsson – Erindi hans ber yfirskriftina: Flóttamannavandinn og viðbrögð alþjóðasamfélagsins

Unnur Brá Konráðsdóttir – Erindi hennar ber yfirskriftina: Flóttinn frá Sýrlandi

unnurbrakonradsdottir

Stjórn hvetur alla, sjálfstæðismenn sem og aðra, til að mæta á þennan fund. Gott kaffi og veitingar á staðnum.

Stjórn þakkar góðar viðtökur félagsmanna vegna útsendingar félagsgjalda, hvetur alla sem hafa tök á að greiða sitt gjald, félagsgjöldin eru forsenda þeirrar starfsemi sem félagið rekur.

Kveðja,
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi