Laugardagsfundur: Framsögumaður Geir H. Haarde

412

Kæru félagar í Sjálfstæðisfélaginu í Kópavogi

Stjórn kynnir fræðandi fund næstkomandi laugardag, þann 15. nóvember, kl. 10.00 í Hlíðarsmára 19.

Framsögumaður á þessum fundi er Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.

Stjórn hvetur alla sjálfstæðismenn til að mæta á þennan fund. Gott kaffi og veitingar á staðnum.

Stjórn þakkar góðar viðtökur félagsmanna vegna útsendingar félagsgjalda, félagsgjöldin eru forsenda þeirrar starfsemi sem félagið rekur, og hvetur félagsmenn almennt til að greiða.

Kveðja,
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi