Laugardagsfundur: Heilsugæsla á tímamótum

403

Kæru félagar í Sjálfstæðisfélaginu í Kópavogi.

Stjórn kynnir mjög áhugaverðan fund næstkomandi laugardag, þann 7. nóvemberkl. 10.00 í Hlíðarsmára 19.

Framsögumaður á þessum fundi er Oddur Steinarsson, framkvæmdastjóri lækninga Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Erindi hans mun bera yfirskriftina: „Heilsugæsla á tímamótum“.

Stjórn hvetur alla til að mæta á þennan fund. Gott kaffi og veitingar á staðnum.

Stjórn þakkar góðar viðtökur félagsmanna vegna útsendingar félagsgjalda, hvetur alla sem hafa tök á að greiða sitt gjald, félagsgjöldin eru forsenda þeirrar starfsemi sem félagið rekur.

Kveðja,
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi