Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Reykvíkinga
og formaður utanríkismálanefndar Alþingis
er gestur Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ, Kópavogi og Hafnarfirði
þann 9. mars næstkomandi.

Fundurinn hefst kl. 11:00 og fer fram hjá Sjálfstæðisfélagi Garðabæjar,
í Sjálfstæðisheimilinu að Garðatorgi 7.

Diljá er nýkomin heim frá Úkraínu þar sem hún tók þátt í athöfn
í tilefni þess að tvö ár eru liðin frá innrás Rússlands í landið.
Diljá segir okkur frá stöðu mála, ræðir utanríkismálin og margt fleira.

Diljá Mist er formaður Utanríkismálanefndar þingsins en starfaði auk þess
áður sem aðstoðarmaður Utanríkisráðherra og hefur því mikla reynslu
af utanríkismálum samtímans.

Ilmandi bakkelsi og heitt á könnunni.

Verið velkomin,
Sjálfstæðisfélögin í Garðabæ, Kópavogi og Hafnarfirði.