Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins,
verður gestur sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði, Kópavogi og Garðabæ
laugardaginn 24. febrúar kl. 11:00 á Norðurbakka 1a.

Geir mun fjalla um horfur í alþjóðastjórnmálum en hann starfaði
sem sendiherra Íslands í Bandaríkjunum og sat í stjórn Alþjóðabankans.

Fundurinn verður haldinn í sal Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði að Norðurbakka 1a.

Kaffi og meðlæti.

Við hlökkum til að sjá ykkur.

Stjórnir sjálfstæðisfélaga Hafnarfjarðar, Kópavogs og Garðabæjar