Laugardagsfundur: Sjálfstæðisflokkurinn fyrir framtíðina og unga fólkið

452

Kæru félagar í Sjálfstæðisfélaginu í Kópavogi.

Stjórn kynnir mjög áhugaverðan fund næstkomandi laugardag, þann 21. nóvember, kl. 10.00 í Hlíðarsmára 19. 

Framsögumaður á þessum fundi er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins.

Erindi hennar mun bera yfirskriftina: Sjálfstæðisflokkurinn fyrir framtíðina og unga fólkið“.

Stjórn hvetur alla til að mæta á þennan fund. Gott kaffi og veitingar á staðnum. Stjórn þakkar góðar viðtökur félagsmanna vegna útsendingar félagsgjalda, hvetur alla sem hafa tök á að greiða sitt gjald, félagsgjöldin eru forsenda þeirrar starfsemi sem félagið rekur.

Kveðja,
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi