Laugardagsfundur: Staða íþróttamála í Kópavogi

484

Kæru félagar í Sjálfstæðisfélaginu í Kópavogi.

Stjórn kynnir mjög áhugaverðan fund næstkomandi laugardag, þann 25. október, kl. 10.00 í Hlíðarsmára 19.

Framsögumenn á fundinum verða – Harpa Þorláksdóttir formaður Gerplu, Hannes Strange formaður Breiðabliks, Sigurjón Sigurðsson formaður HK og Jón Finnbogasson formaður Íþróttaráðs Kópavogs

Efni þessa fundar er – Staða íþróttamála í Kópavogi. Er bæjarfélagið og íþróttafélögin að stefna í rétta átt?
Stjórn hvetur alla sjálfstæðismenn til að mæta á þennan fund. Gott kaffi og veitingar á staðnum.

Stjórn þakkar góðar viðtökur félagsmanna vegna útsendingar félagsgjalda, félagsgjöldin eru forsenda þeirrar starfsemi sem félagið rekur, og hvetur félagsmenn almennt til að greiða.

Kveðja, Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi