Laugardagsfundur: Staða Sjálfstæðisflokksins

364

Kæru félagar í Sjálfstæðisfélaginu í Kópavogi.

Stjórn kynnir mjög kraftmikinn og áhugaverðan fund næstkomandi laugardag, þann 27. febrúar, kl. 10:00, í Hlíðarsmára 19.

Framsögumenn á þessum fundi eru: Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, Jón Gunnarsson, alþingismaður og formaður atvinnumálanefndar og Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingismaður og formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins

Yfirskrift fundarins er: „Staða Sjálfstæðisflokksins“.

Stjórn hvetur alla til að mæta á þennan fund. Gott kaffi og veitingar á staðnum.

Kveðja,
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi