Auglýst er eftir framboðum til prófkjörs fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

3582

Auglýst er eftir framboðum til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Framboðum ber að skila með rafrænum hætti til kjörnefndar. Frambjóðandi þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkum á  eftirfarandi tengil: SKRÁNING, fyrir klukkan 16:00 föstudaginn 4. febrúar 2022. Innheimt er 15.000 kr. óafturkræft þátttökugjald við skráningu.

  • Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu sveitarstjórnarkosningum.
  • Hver frambjóðandi skal skila inn skriflegum meðmælum með framboði sínu frá 20 flokksbundnum sjálfstæðismönnum búsettum í Kópavogi, hið minnsta. Tekið skal fram að enginn meðmælandi má mæla með fleirum en 10 frambjóðendum.
  • Frambjóðandi skal vera flokksbundinn sjálfstæðismaður og búsettur í Kópavogi

Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar frambjóðendum, eftir að framboðsfresti lýkur.

Prófkjörið fer fram laugardaginn 12. mars 2022.

Einnig er hægt að sjá upplýsingar á vef Sjálfstæðisflokksins, HÉR

Kjörnefnd