Þóra Margrét Þórarinsdóttir

479

gefur kost á sér í 2. – 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi þann 8. febrúar n.k.

„Ég vil bjóða fram krafta mína og þekkingu fyrir íbúa Kópavogsbæjar. Ég bý að góðri menntun og fjölbreyttri reynslu í atvinnulífinu. Ég legg upp úr heiðarleika og trausti í þeim samskiptum og verkefnum sem mér eru falin“.

Þóra hefur viðtæka reynslu í atvinnulífinu. Hún hefur unnið við: Landbúnaðarstörf, fiskverkun, fjármálastjóri MH 1996 – 1999, framkvæmdastjórn saltfiskverkunarinnar Útvers á Bakkafirði, setið í verkefnisstjórn við stofnun leikskóla Skeggjastaðahrepps, eðlisfræði- og tungumálakennsla við grunnskóla, rekið fjarvinnslufyrirtæki, innkaupa-og skrifstofustjóri hjá Hagkaup, almenn verslunarstörf, tölvukennsla v. framhaldskóla, rekstrarstjóri líftæknifyrirtækis, markaðsstjóri Landmælinga Íslands og er núverandi framkvæmdastjóri Áss styrktarfélags þar sem hún hóf störf í maí 2001. Situr nú í stjórn Skálatúns í Mosfellsbæ og er starfandi stjórnarformaður Íslenskar Getspár.

Þóra er með Bs. próf í landafræði frá HÍ. Auk þess viðskipta- og rekstrarnám frá Endurmenntun HÍ og MBA nám frá HÍ 2011. Hún hefur einnig stundað MBA nám við háskóla í Bandaríkjunum 2006.

Þóra hefur tekið þátt í pólitísku starfi Sjálfstæðisflokksins og gengt fjölda trúnaðarstarfa fyrir flokkinn. Hefur setið í skipulags- og félagsmálanefnd Kópavogsbæjar. Félagi í Rótarýklúbbnum Borgum í Kópavogi frá 2000. Þóra hefur tekið virkan þátt í starfi Lútherskrar hjónahelgar á Íslandi og alþjóðlegu samstarfi þeirra samtaka s.l. 14 ár. Situr og hefur setið í fjölmörgum nefndum á vegum Landssamtakanna Þroskahjálpar og Öryrkjabandalags Íslands.

Þóra fluttist í Kópavoginn 1995. Hún er gift Sr. Gunnari Sigurjónssyni sóknarpresti í Digraneskirkju og sterkasta presti í heimi. Þau eiga tvö börn. Önnu Margréti fædda 1990, snyrtifræðing og nema. Ara Þór fæddan 1993 sem stundar nú nám við VFS í handritsgerð fyrir kvikmyndir og sjónvarp.