Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Kópavogs 2019

Sjálfstæðisfélag Kópavogs boðar til aðalfundar þann 5. mars 2019 kl. 20:00 í Hlíðasmára 19.

Samkvæmt 9. gr. laga félagsins skal halda aðalfund eigi síðar en í febrúar ár hvert og til hans skal boða með minnst sjö daga fyrirvara.

Dagskrá fundarins:

- Skýrsla formanns um starf félagsins 2018-2019
- Ársreikningur Sjálfstæðisfélags Kópavogs 2018 kynntur af gjaldkera félagsins
- Sjálfstæðisfélag Kópavogs til framtíðar
- Ákvörðun um félagsgjald fyrir árið 2019
- Kosning formanns
- Kosning í stjórn
- Kosning endurskoðenda
- Kosning í fulltrúaráð og kjördæmisráð
- Önnur mál

Þeir félagar í Sjálfstæðisfélagi Kópavogs sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi félagsins og vilja bjóða sig fram til setu í stjórn, sbr. 5. gr. laga félagsins, eru hvattir til að senda tölvupóst á [email protected] en einnig er hægt að tilkynna framboð á sjálfum fundinum.

Fyrir hönd stjórnar,
Sigurður Sigurbjörnsson, formaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs

Fréttin var birt 26.02.2019

Scroll to Top