Frelsið tapast sjaldnast allt í einu -laugardagsfundur 27. september kl. 10

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra, fjallar um ógnir og áskoranir í utanríkismálum samtímans á laugardagsfundi okkar 27. september nk. Fundarstjóri er Sólveig Pétursdóttir, formaður Eddu, félags sjálfstæðiskvenna í Kópavogi og fyrrverandi dómsmálaráðherra. Virkilega áhugaverður og opinn fundur sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Fundurinn fer fram í sjálfstæðissalnum Hlíðasmára 19, kl. 10-12. Rjúkandi kaffi á könnunni og krúðeri í boði. Skráning hér

Verið hjartanlega velkomin.
Stjórn Sjálfstæðisfélags Kópavogs

Fréttin var birt 22.09.2025

Scroll to Top