Íbúar ánægðir í Kópavogi · Jákvæð þróun milli ára

88% Kópavogsbúa eru ánægðir með Kópavog sem stað til að búa á og hefur ánægja aukist milli ára, að því er fram kemur í árlegri þjónustukönnun Gallup um viðhorf til þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins.

Í könnuninni er spurt um þjónustu í tólf málaflokkum og mælist Kópavogsbær yfir meðaltali sveitarfélaga í tíu þeirra. Í nær öllum liðum hefur ánægja aukist frá síðasta ári og í öllum málaflokkum er mun meiri ánægja en óánægja.

Mest er ánægja með aðstöðu til íþróttaiðkunar í bænum en þar eru 91% aðspurðra ánægð. Þá hefur ánægja með þjónustu við barnafjölskyldur aukist milli ára, bæði hvað varðar leikskóla og grunnskóla. Ánægja með menningarmál mælist 72% og 79% aðspurðra eru ánægð með þjónustu í tengslum við sorphirðu, sem er hæst meðal sveitarfélaga.

Mest aukning milli ára mælist í þjónustu grunnskóla, þar sem ánægja hækkar úr 68% í 75%, og í þjónustu leikskóla, þar sem hún hækkar úr 58% í 67%.

Erum afskaplega þakklát

„Við erum afskaplega þakklát að sjá hversu mikil ánægja er með þjónustu í Kópavogi og er ánægjan heilt yfir að aukast milli ára. Þá sjáum við mesta ánægjuaukningu í þjónustu leik- og grunnskóla en Kópavogsbær fór í miklar breytingar á leikskólamódelinu og hefur verið að kynna aðgerðir í grunnskólamálum. Mikil ánægja er með aðstöðu til íþróttaiðkunar og mælist ánægjan hæst meðal sveitarfélaga. Kópavogsbær er í flestum málaflokkum yfir meðaltali á landsvísu. Við munum áfram setja metnað í enn betri þjónustu við íbúa í öllum málaflokkum,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.

Kópavogsbær er íþróttabær

Ánægja með aðstöðu til íþróttaiðkunar mælist 91%, sem er hæst meðal sveitarfélaga. Nú er að fara af stað mikil uppbygging fyrir HK í Kórnum og nýr gervigrasvöllur var lagður við Fífuna sl. haust. Ætlar Kópavogur að vera áfram í fremstu röð þegar kemur að aðstöðu til íþróttaiðkuna og hvað er næst á dagskrá erum kemur að íþróttamannvirkjum? ,,Að sjálfsögðu ætlum við áfram að vera í fremstu röð. Kópavogsbær er íþróttabær og við leggjum mikinn metnað í að tryggja að aðstaða til íþróttaiðkunar séu til staðar fyrir börn og ungmenni í bæjarfélaginu. Við erum með áform í okkar áætlunum að fara í framkvæmdir fyrir hestamenn í samstarfi við Sprett og Garðabæ. Þá erum við í góðu samtali við GKG um að bæta þjónustumiðstöðina hjá þeim,“ segir hún.

Ánægjan eykst jafnt og þétt með meiri reynsla

Kópavogsmódelið hefur verið gagnrýn töluvert, en sýna þessar niðurstöður að módelið sé að virka því þjónusta við leikskóla hækkar úr 58% í 67% sem er í raun 15,5% hlutfallsleg aukning? ,,Við höfum verið að sjá ánægjuna aukast jafnt og þétt eftir að meiri reynsla er komin á Kópavogsmódelið. Foreldrar í Kópavogi finna aukinn stöðugleika í þjónustunni og þau geta treyst á þessa mikilvæga þjónustu, enda höfum við aldrei þurft að loka sökum manneklu eða veikinda. Þá gengur mun betur að manna leikskólana eftir að við tókum upp Kópavogsmódelið.
Staðan í Kópavogi er því gjörólík þeirri stöðu sem við sjáum í Reykjavík þar sem dæmi eru um foreldra sem eru með börnin sín heima jafnvel einn dag í viku og fá ekki leikskólapláss fyrr en börnin eru að nálgast tveggja ára aldur. Í því samhengi er mikilvægt að hafa í huga að áður en við fórum í breytingarnar vorum við að glíma við nákvæmlega sömu áskoranir og í borginni,“ segir Ásdís.

Þakklát og glöð að sjá hvað Kópavogsbúar eru ánægðir með þjónustuna

Var eitthvað í niðurstöðunum sem kom þér sérstaklega á óvart? ,,Heilt yfir er ég afskaplega þakklát og glöð að sjá hvað Kópavogsbúar eru ánægðir með okkar þjónustu. Ég hef fundið það á samtölum mínum við íbúa að almenn ánægja er með bæjarfélagið okkar og þá þjónustu við sem veitum. Það var vissulega mjög ánægjulegt að sjá svona mikið stökk í ánægju íbúa með þjónustu okkar í grunn- og leikskólum einkum í ljósi þess að við höfum á þessu kjörtímabili sett menntamálin á dagskrá og verið leiðandi í breytinum á því sviði á landsvísu.“

Þurfum að bæta okkur í þjónustu við fatlað fólk

Hver voru helstu vonbrigðin í könnuninni og hvar telur þú að bæjarfélagið þurfi helst að bæta sig á næstu misserum? ,,Við þurfum að bæta okkur í þjónustu við fatlað fólk og við viljum svo sannarlega gera vel á því sviði. Ég veit að starfsfólkið okkar á Velferðarsviði leggur sig fram dag frá degi til að mæta þörfum okkar íbúa en við sjáum að þarna eru tækifæri til úrbóta. Þess vegna höfum við ákveðið í kjölfar þessarar könnunar senda út sérstaka púlskönnun meðal þeirra íbúa sem nýta sér þjónustuna til að greina betur hvar tækifæri liggja til úrbóta,“ segir Ásdís.

Ánægja hefur aukist í flestum málaflokkum milli ára. Hvernig hyggst bærinn halda þeirri jákvæðu þróun áfram? ,,Við erum sífellt að rýna hvar getum við bætt okkur, gert hlutina öðruvísi eða forgangsraðað með öðrum hætti okkar þjónustu. Við ætlum að sjálfsögðu gera það áfram.“

Frábært að sjá þessa sterku niðurstöðu

Og 88% íbúa eru ánægðir með Kópavog sem búsetukost og ánægja eykst milli ára. Er ekki erfitt að ná hærra hlutfalli en það eða á hvað stefnir bæjarstjórinn? ,,Það er auðvitað frábært að sjá þessa sterku niðurstöðu og við finnum að Kópavogsbúar eru almennt ánægðir í okkar sveitarfélagi. Mikilvægast af öllu er að við mætum þörfum okkar íbúa og séum stöðugt að rýna hvar við getum bætt okkur. Samfélög breytast og þarfir íbúa og þá er mikilvægt að bærinn breytist í takt við breyttar þarfir,“ segir Ásdís að lokum.

Könnunin var framkvæmd á tímabilinu 17. nóvember 2025 til 13. janúar 2026. Um er að ræða síma- og netkönnun í 20 stærstu sveitarfélögum landsins. Þátttakendur voru 18 ára og eldri og notast var við lagskipt tilviljunarúrtak úr viðhorfahópi Gallup. Gagnaöflun stóð yfir þar til tilteknum fjölda var náð í hverju sveitarfélagi. Í Kópavogi svöruðu 446 einstaklingar.

Viðtalið birtist í Kópavogspóstinum 19/02/2026

Fréttin var birt 19.02.2026

Scroll to Top