Frelsisverðlaun Kjartans Gunnarssonar fyrir árið 2026 voru veitt á dögunum, en þau hafa verið veitt um árabil í tveimur flokkum; til einstaklinga og lögaðila. Í flokki lögaðila var það Kópavogsbær sem hlaut viðurkenningu sem bæjarstjórinn okkar, Ásdís Kristjánsdóttir veitti viðtöku.
Í rökstuðningi fyrir valinu sagði Júlíus Viggó formaður SUS meðal annars í ræðu sinni:
„Frelsi í velferðarmálum snýst ekki aðeins um hugmyndafræði. Það snýst um raunverulegt svigrúm fólks til að taka ákvarðanir um eigið líf og líf barna sinna. Undanfarin misseri hefur Kópavogsbær markað sér skýra sérstöðu í leikskólamálum með því sem kallað hefur verið Kópavogsmódelið.„
Þá benti hann auk þess á að aðferðafræði Kópavogsbæjar hefði sannað sig. Leikskólarnir í bænum væru svo gott sem fullmannaðir, tekist hefði að opna deild í einum leikskóla sem hafði staðið ónýtt í sex ár vegna manneklu, lokunardagar í skólum heyrðu sögunni til og stór hópur foreldra hefði kosið að nýta sér skemmri dvalartíma fyrir börn en áður hefði verið.
„Kópavogsmódelið er því ekki aðeins breyting á skipulagi leikskólamála. Það er dæmi um hvernig skýr ábyrgð geta skilað raunverulegum árangri í opinberri þjónustu.“ Segir í rökstuðningi fyrir valinu.


