Laugardagsfundur um Virkni og vellíðan í Kópavogi

Virkni og vellíðan er verkefni sem miðar að heilsueflingu fyrir 60 ára og eldri í Kópavogi. Mikil ánægja hefur verið með verkefnið, sem hefur staðið yfir síðustu tvö ár. Laugardaginn, 1. nóvember, fáum við Fríðu Karenu Gunnarsdóttur og Freydísi Eiríksdóttur, verkefnastjóra verkefnisins, til að leiða okkur í allan sannleikann um hvað felst í því og hver árangurinn hefur verið fyrir íbúa Kópavogs.
Fundarstjórn: Elísabet Sveinsdóttir, bæjarfulltrúi. 
Fundurinn fer fram í félagsheimili sjálfstæðisfólks, Hlíðarsmára 19 í Kópavogi.
Veitingar í boði!

Fréttin var birt 01.11.2025

Scroll to Top