Fiskidagurinn litli

504

Í náinni framtíð verður hafnarsvæðinu á Kársnesi breytt í yndishöfn þar sem fjölbreytt íbúðabyggð og þjónusta mun gera Kársnesið að einu mest spennandi íbúðahverfi á Íslandi

Laugardaginn 17. maí klukkan 12-14 mun Guðmundur Geirdal, frambjóðandi í 5.sæti Sjálfstæðisflokksins, sjómaður og aðalmaður í skipulagsnefnd Kópavogs, bjóða uppá sína víðfrægu fiskisúpu við smábátahöfnina og tala um framtíðarskipulagið. Aðrir frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins verða auðvitað á staðnum og við hlökkum til að sjá sem flesta.

Harmonikkuleikari heldur uppi léttri stemningu og blöðrulistamaður skemmtir börnunum.

Sjáumst á Kársnesinu á laugardaginn!
Fiskidagurinn litli